Ađalvalmynd

Auglýsing

"Já ég vildi ađ jólin kćmu strax í dag"

26. nóvember 2008 klukkan 21:08
..."Þá gætu allir dansað og sungið jólalag"

Aww þetta lag minnir mig svo á jólaþema í skólanum heima back in the days ;)

En já.. Sælir góðir hálsar. Eins og flestir tóku eftir þá læsti ég síðunni minni því ég hreinlega nennti ekki að blogga, ég fékk líka ritarastíflu í hvert skipti sem ég ætlaði að fara að skrifa ;) Þannig mig langaði ekki að hafa síðuna þarna galopna eins og enginn væri morgundagurinn og ekkert skrifað? Ég held ekki..

Fyrst ber að nefna áður en ég byrja á því sem daga mína hafa drifið.. Ég er byrjuð að hlusta á jólalög. Ég er hræðileg, ég veit. Og ég sem var svo mikið á móti því að hlusta á jólalög fyrir 1.des. En ég meina, 1.des er bara around the corner ekki satt? :p

Svo þarf ég að minnast á að seinasti kennsludagur er bara á föstudaginn. Á föstudaginn! 28.nóvember og ég búin í skólanum. Svo er ég líka búin með flest alla áfangana mína þannig ég þarf ekki mikið að mæta á morgun og á fötudaginn ;) Sjónlistin er t.d. búin þannig ég þarf bara að mæta í tvö fyrstu tímanna og svo er ég all set ;)
En já.. ég er t.d. búin að klára alla áfangana mína nema listir og menningu, lífsleikni og dönsku. En þessi tveir síðarnefndu klárast á morgun, allaveganna lífsleiknin :)
Svo taka bara við próf í næstu viku og hjá mér verða bara tvö próf. Tvö próf believe it or not ;) Svona er ef maður er á listnámsbraut :p Prófin eru semsagt á mánudeginum og fimmtudeginum þannig að... ég verð bara komin heim 5.des. Awesome ekki satt :p
Herbergisfélagi minn er í MA og... hún hætti ekki fyrr en 19.des. Æjj aumingin :p

Eins og flest allir vita tognaði ég fyrir tveim mánuðum kannski aftan í læri haggi..? vitiði.. þetta er enn að hrjá mig, sértaklega þegar ég sit. Og eftir erfiða spinning tíma eins og ég var í áðan er ég alveg búin á því.. Alveg.. :p

Annars hef ég bara verið að gera það sem hinn venjulegi unglingur gerir sem er í framhaldskóla. Og ég er ekki að fara að nenna að telja það allt upp, það bíður betri tíma :p


Allaveganna.. látum þetta gott heita í dag... Guð veit hvenær næsta blogg... reyni samt að skella í eitt um helgina. Árshátið og meira að gerast um helgina :)


P.s. Allar þær sem voru með mér í fimleikum annað árið...(eða var það þriðja árið..?) En allaveganna.. þær sem voru með mér í jóladasninum, fáið þið þá ekki flashback þegar þið hlustið á Jólin Eru Að Koma með Í Svörtum Fötum..?.. Ég bara spyr :D

Ég hendi inn einni mynd af uppáhalds dj-inum mínum um þessar mundir.... Benny Benassi gott fólk..


http://shadowmask.files.wordpress.com/2008/07/51vghc07nzl_ss500_1.jpg

Takk og bless :)

Síđa vakinn upp af svefni!

22. september 2008 klukkan 23:53
Já, sælir góðir hálsar, síðan hefur verið vakin upp frá frábærum og nauðsynlegum svefni sem stóð yfir sumartímann. Alveg nauðsynlegur gat ég sagt ykkur ;) En fyrst ég þurfti að eyða heilum 19 kr af inneigninni minni, sem er býsna mikið fyrir mig, þegar mamma hefur þurft að fylla á 2000 kaaall nokkrum sinnum seinasta mánuðinn :P þá vil ég sjá þessar heilar 19 krónur koma til góðra nota, eða ég mun rukka ykkur öll um 19 kr af ykkar eigin inneign ;)

En allaveganna, ég mun örugglega skella einu eldhressu bloggi í enda vikunnar, þriggja daga helgi and all, sem þýðir heim á hótel mömmu yfir helgina ;)